Um okkur

Félag ása á Íslandi var formlega stofnað 25. febrúar 2018 í húsum Samtakana 78, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík. Saga félagsins er þó lengri, en lengi vel var ekkert samfélag ása á Íslandi. Þann 28. júní 2015 var stofnaður lokaður Facebook hópur fyrir ása en fáir vissu af honum, enda lokaður hópur og því ekki hægt að leita að honum. Ástæðan fyrir því var og er að margir í honum eru hreinlega ekki búnir að koma út og er hópnum ættlað að vera öruggur staður fyrir ása.

Það var svo í maí 2017 þar sem upp spratt umræða á hinseginspjallinu á Facebook hvort ekki væri til eitthver síða eða grúppa til að beina ásum á. Þannig að þann 29. maí 2017 tók Gyða Bjarkadóttir sig til og stofnaði Like síðuna Asexual á Íslandi á Facebook sem var síðan breytt í Ásar á Íslandi. Þá fór boltinn að rúlla fjöldi mans hafði samband við Gyðu í gegnum þá síðu sem hún samviskusamlega bætti við lokaða hópinn.

Hópurinn óx og ákveðið var að taka þátt í gleðigöngunni 2017 og var það í fyrsta skipti sem ásar gengu saman á Íslandi. Það fékk mikla umfjöllun í fjölmiðlum, blöðum, vefmiðlum, útvarpi og sjónvarpi. Hópnum til mikillar gleði fékk hann hvattningarverðlaun hinsegindaga það árið. Það var samdóma álit dómnefndar og var talað um að hópurinn hafi verið áberandi, m.a. í fjölmiðlum og hópurinn stóð sig vel við undirbúning og í tilsvörum þar sem við átti. Þetta var svo sparkið í rassinn til að við stofnuðum formlega Félag ása á Íslandi. Heiti like síðunnar var þá breyt í Ásar á Íslandi og er nú í höndum stjórnar félagsins.

Félagið hefur vaxið jafnt og þétt og fræðsla aukist. Við höfum átt gott samstarf við Samtökin 78 og fengum við hagsmunaraðild 2019. Við erum ótrúlega stolt að því hvað við höfum komist langt á stuttum tíma en verkinu er ekki lokið. Við verðum að halda áfram að vera sýnileg og stuðla að fræðslu.